Ef ég væri ríkur

Daglega dynja yfir okkur fréttir af milljarða skulda afléttingum hjá hinum og þessum fyrirtækjum og öðrum þar sem tugir milljarða hafa verið færðir á milli fyrirtæka/EHF í eigu sömu aðila en teljast ný og óaðfarahæf??
Þetta lægir á engan hátt þá miklu reiði sem ríkir í landinu og nú hrópar fjármálaráðherra að hugsanlega verði tekið til í bótakerfinu sem hefur verið óbreytt sl.3 ár? Hvað er nýtt? Jú Seðlabankinn birti sína svörtu skýrslu um stöðu heimilana í landinu og samkvæmt þeim tölum eru það bílaakaup sem hafa rústað fjárhagi fjölda fjölskyldna og í einhverjum tilfellum 2 bílar keyptir.
Það sem þingmenn virðast ekki átta sig á að við íbúðarkaup er gert greiðslumat og inn í því eru allar skuldir og tekjur um gjaldþol þessarar fjölskyldu en enginn varnagli gerður í bankakerfinu um að þessi sama fjölskylda fari í næsta bílaumboð og kaupi nýjan bíl á lánum??
Hverjum skildi þetta vera að kenna? Ríkisstjórninni? Nei og ég er sammála velferðarráðherra að aldrei hafi staðið til að ríkið niðurgreiddi óráðsíu neyslulán.
Þingmenn verða að taka sig saman í andlitinu og endurrita nýjasta frumvarp um fjármálafyrirtæki þar sem EHF félög séu ekki geymslustaður hlutabréfa eða griðarstaður launþega og ber að afnema slík hlunnindi.
Þá er ekki heldur stætt á því að sami aðili með aðstoð Ríkisskattstjóra sé með 5-10 EHF félög þar sem öll fjársýsla viðkomandi er bútuð niður á félögin til að geta sett eitt og eitt þeirra eignalaust í gjaldþrot.
Þetta er þjóðfélagsböl sem kostar þjóðina sem heild gríðarlega fjármuni og enginn er ábyrgur fyrir neinu. Samst sem áður sást leikur á borði að banna EHF fyrirtæki fyrir fjölskyldur um rekstur heimila?? Það er hagkvæmara að hafa færri stöndug félög en þúsundir á brauðfótum eins og er í dag þar sem byrgjar verða að lána sínar vöru til verslana og fá seint og illa greitt fyrir vöruna en bera sjálfir fulla ábyrgð gagnvart framleiðanda. Hvernig getur svona verslunarmáti gengið til lengdar og þau dómínó áhrif sem verður falli einn hlekkur í keðjunni.
Ekki má heldur hafa áfram stétt hinna ósnertanlegu(Ríkisstarfsmanna) og þarf að endurskoða þau lög frá grunni enda með öllu ótækt að ekki sé hægt að vkja óhæfum starfsmönnum úr vinnu nema með 1-3 áminningum og feitum starfslaunasamningi.
Hvers vegna þarf 25.000 manna samfélag hinna ósnertanlegu til reksturs á 330.000 manna samfélagi. Hann Boris borgarstjóri Lunduna yrði ánægður að hafa sama hlutfall starfsmanna m.v.íbúatölu
Áhlaupið á Samherja eru verstu mistök stjórnsýslunnar þar sem það mun koma í ljós að ekkert ólöglegt var þarna á seyði en skaðinn skeður.
Yfir 150 gjaldeyrissvikamál eru á borðum í Seðlabankanum og 30 þeirra voru send áfram til séstaks saksóknara sem felldi þau niður þar sem lögin voru ófullkomin og refsirammi brotanna óskýr.
Við komum til með að eyða yfir 200 milljörðum í rannsóknarkostnað á hruninu og þessu verður ekki lokið á næstu 7 árum og hluti málanna fyrndur.
Kortlagning gjaldeyrisflæðis úr landinu er í tölvum Seðlabankans og hvert greiðslunar fóru og að ræða um markaðsmisnotkun er hreint bull og 6 ára fangelsi.
Enn þann dag í dag eru hundruðir EHF félaga í fullum rekstri erlendis sem enginn veit um hér og það er nú ekki svo strembið fyrir hjón að fara með 700.000 í ferðamannagjaldeyrir úr landi(vasapeningar)því þessu til viðbótar er uppihald og flug greitt sér. Eyðsla á greiðslukorti umfram þessa fúlgu í vasapeningum er ekki óheimil þannig að núverandi stjórn Seðlabankans er alveg úti á túni og ætti að skipta þeim inn fyrir forsetann í Spaugstofunni.

Samverustund í Bústaðakirkju að hlaða líkamann orku

05.03.2012 08:17

Bústaðakirkja í Reykjavík

Verð með hugleiðslu heilunar og kyrrðarstund
í Bústaðakirkju Mánudaginn 5 mars 2012 kl.20.00 Þeir sem vilja þiggja aðstoð með kvilla eru velkomnir svo og aðrir. Gestir fá sér sæti í algjörum friði á meðan athöfnin stendur yfir og fá yfir sig milda orku sem græðir sár í hjörtum og lýsir upp innri kjarna mannsins
Nánar á heimasíðu kirkjunnar.
Enginn aðgangseyrir

Um bloggið

Þór Gunnlaugsson

Höfundur

Þór Gunnlaugsson
Þór Gunnlaugsson
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 1048

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband